Þriðjudagur 25.september 2007
Berlín
Var í Berlín um helgina með vinnunni, ferð á vegum IcelandExpress. Byrjaði á fjögurra tíma seinkun á fluginu út, endurlit til DK ferðar nema ekkert flugvallarhangs núna, en að lokum kom vél frá Transavia. Þegar út var komið þurfti að spyrja alla rútubílstjóra á svæðinu hvort þeir könnuðust við að vera að ná í hóp af Íslendingum, því IE borgar ekki leigubíl undir fararstjórann sinn, hann á að nota almenningssamgöngur, og það hentar því miður ekki að nota þær langt út í sveitir um miðjar nætur.
Þegar halda átti heim þá varð klukkutíma seinkun á brottför af hótelinu því rútan fór á vitlaust hótel, bílstjórinn var kvenkyns veit ekki hvort það hafði úrslitaáhrif, en það kom nú svo sem ekki að sök þar sem fólki var ekki hleypt um borð í flugvélina fyrr en um 10 mín eftir áætlaða brottför. Fórum því rúmlega hálftíma of seint í loftið. Þá hlaut allt að vera á enda komið og rólegheit það sem eftir væri... en nei þegar komið var upp að flugstöðinni þá voru einhver vandræði með landgönguranann, samt hæpið að kenna IE um það.
Þrátt fyrir þessar uppákomur var þetta fínasta ferð og Berlín skemmtileg borg. Við vorum þrjú þarna úti vinnufélagar sem áttum afmæli 22., sá fjórði sat heima, fimmti var nýhættur, spurning um að biðja Finn um að reikna út líkurnar á að svona margir í frekar afmörkuðu mengi eigi sama afmælisdag. En svona í tilefni af því þá færði starfsmannafélagið okkur kampavín og konfekt ásamt kórónum, ekki slæmt það.
Gist var á Gates hótelinu í miðhluta Berlínar og er ekkert yfir því að kvarta, fín herbergi, fín þjónusta, nettengdar tölvur á herbergjum, 26 sjónvarpsstöðvar þar af 24 á þýsku.
Öryggisgæslan á Schönefeld, rekin af Skúritas, fær ekki háa einkunn, virtust lítið kunna á það sem þau voru að gera, gegnumlýstu sama farangurinn margoft og voru miklar tafir í vopnaleitinni og handbrögðin voru frekar klunnaleg miðað við mína reynslu á öðrum flugvöllum. Þau ættu kannski að senda liðið í starfsþjálfun hingað heim. Svo þyrfti líka að kenna þeim smá ensku ;)
Veit ekki hvort það tengist þessu en ríkislögreglan, eða einhver flugvallararmur hennar, gegnumlýsti farangur sem fór í lestina áður en við fórum í innritunina. Kannski treysta þeir ekki vinnubrögðum Skúritas frekar en ég.
Þakka svo þær fjölmörgu afmæliskveðjur sem bárust.
Að lokum... Hver er bestur til að svara bréfum sem berast til The New York Observer? Sjá hér.
Miðvikudagur 5.september 2007
Listamaðurinn SG
Það eru ekki margir sem vita það en ég er mjög afkastamikill málari. Hér sést Ingunn sýna nýjasta verkið mitt en það hangir einmitt á vegg í Hafnarfirði um þessar mundir. Mikið hefur verið boðið í verkið en það er ekki til sölu eins og er, nema mjög gott tilboð berist.

Annars er íbúðin komin í leigu frá og með deginum í dag en síðustu tveir dagar fóru í ljósauppsetningu og almenna standsetningu.